13.11.2007 | 17:42
Huglaus landsliðsþjálfari.
Ég verð að viðurkenna að nýji landsliðsþjálfarinn veldur mér miklum vonbrigðum með sínu fyrsta vali á landsliðshóp. Sami grauturinn í sömu skálinni, aðeins skipt um sleifina sem hræra skal í pottinum. Sú skoðun Óla að ekki hafi komið til greina að skipta um fyrirliða finnst mér lika furðuleg. Ég eins og allir sem áhuga hafa á fótbolta vona að liðinu gangi vel á Parken á móti Dönum en ég verð að viðurkenna að ég er ekki bjartsýnn. Afsakanir um að tíminn sé knappur osfrv. eru ekki teknar gildar þegar um ísl.landsliðið er að ræða, þar er tíminn alltaf knappur. Langt hlé er framundan hjá liðinu og vona ég að Óli og co taki sig saman í andlitinu og safni kjarki til breytinga og sýni okkur áhugamönnum um ísl. landsliðið að ráðning hans hafi verið rétt í stöðunni. Að lokum verð ég að ítreka þá skoðun mína að valið veldur mér vonbrigðum og er að mínu mati metnaðarlítið fyrir nýráðinn einvald og þjálfara.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Af mbl.is
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
Spurt er
Á að leyfa blogg í skjóli nafnleyndar?
Athugasemdir
Er ekki allt í lagi að hann fái að stjórna liðinu í einum leik áður en þú mótar þér skoðun og verður fyrir vonbrigðum.
Þessi maður er snillingur og það vita allir sem hafa fylgst með verkum hans.
Ingi Braga, 13.11.2007 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.