Af hverju frestun skýrslu? Af hverju frestun atkvæðagreiðslu?

Það er farið að vekja athygli að nefndin sen er að gera skýrsluna um "hrunið og aðdraganda þess skuli frsta í sífellu birtingu hennar.  Nefndin heldur blaðamannafundi þar sem hún trekk í trekk ítrekar hversu svört skýrslan sé og hafi jafnvel valdið höfundum hennar þvílíku hugarangri að menn nánast bresti í grát.  Flestir harma þessa seinkun en þóekki okkar ástkæri fjármalaráðherra.  Hann virðist gleðjast þó hann fari pent með það en sér þó sóknarfæri í seinkuninni og tengir hana þjóðarátkvæðagreiðslunni sem hann vill meina að verði að fresta líka því almenningur þurfi að geta kynnt sér skýrsluna áður en hann greiði atkvæði um ICESAVE--já eða nei.  Þegar síðast fréttist  var skýrslan komin ´2000 síður, eg endurtek tvö þúsund síður.  Ætlast Steingrímur til að almenningur setjist yfir skýrsluna, lesi hana, og skilji hana og greiði svo atkvæði byggt á vitneskju sinni úr skýrslunni.  Hvaða rugl er þetta?  Fyrir stuttu síðan treystu hvorki Jóhanna né Steingrímur þjóðinni í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave því það væri of flókið en nú skal þjóðinni treyst til að lesa og skilja 2000 síðna bálk sem vantanlega er ekki skrifaður á venjulegu mannamáli heldur byggð á fræðilegum útlistunum sem alls ekki allir eru færir um að skilja frá orði til orðs!!  Látum nú finna fyrir okkur, almenningur í landinu skal láta ríkisstjórnina standa við dagsetningu þá sem þegar hefur verið ákveðin og ekkert múður.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhann Hannó Jóhannsson
Jóhann Hannó Jóhannsson
Einfættur sjálfstæðismaður sem dáir MAN UTD, Breiðablik,F.Berlin. Hefur unun af ræktun rósa og gaman af hvers kyns ræktun.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband