Sjálfstæðiflokkurinn í borginni í vörn-aðstoð óskast.......

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins þarfnast hjálpar nú þegar, ekki bara VÞV heldur flokkurinn í heild sinni.  Dag eftir dag læta þau ekki ná í sig eða vilja ekki tjá sig um einföldustu hluti, menn og málefni.  Flokkurinn spilar stífan varnarleik en það er ekki nóg því vörnin er hriplek og fyrirliðinn er ekki viss um það sjálfur hvort hann sé í standi til að spila.  Það kann ekki góðri lukku að stýra og greinilegt er að það er ekki samstaða um hver sé varafyrirliði, hver taki við keflinu þegar fyrirliðinn yfirgefur völlinn.  Fyrir utan það að það er hundleiðinlegt að fylgjast með liði sem leggst í vörn þá vita það allir að sú aðferð er ekki líkleg til árangurs.  Andstæðingurinn er alltaf í sókn, hversu illa sem hann spilar . hefur hann alltaf yfirhöndina.  Á pappírnum virkar lið Sjálfstæðisflokksinsn firnasterkt með hæfilega blöndu yngra fólks og eldra, reynslulitlir með reynsluboltum, hin fullkomna uppskrift því þarna eru líka mjög frambærilegar konur sem virkuðu fyrir síðustu kosningar tilbúnar í slaginn.

Það verður að seigjast eins og er að í ölduróti undanfarinna vikna virðist enginn tilbúinn til að axla ábyrgð, stíga fram og tjá sína skoðun og fara að haga sér eins og fullorðnum stjórnmálamönnum sæmir, við kjósendur SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS eigum heimtingu á því.  Ef enginn rífur sig upp úr meðalmennskunni, VÞV tekur ekki ákvörðun þá kalla ég hér með eftir afskiptum forystu flokksins. Geir og Þorgerður þurfa virkilega að grípa í taumana.  Ástandið í borginni er virkilega farið að laska flokkinn á landsvísu og ef ekkert verður að gert blæðir honum út.  Borgarbúar hafa það á tilfinningunni að enginn tími gefist til að stjórna borginni, allur tími og kraftur fari í innanflokksátök og að standa vaktina í hriplekri vörninni.  Sóknarfærin eru fjölmörg fyrir flokkinn en enginn virðist þess umkominn að hætta þessu pukri og aumingjaskap og drífa sig og flokkinn í sóknina og fara að skora mörk.  Einu mörkin sem Sjálfstæðisflokkurinn í borginni hefur skorað upp á síðkastið eru sjálfsmörk og við svo búið má ekki standa lengur.  Við Sjálfstæðismenn erum orðnir virkilega áhyggjufullir enda benda skoðanakannanir til þess að við séum í vanda á landsvísu en meinið er borgarstjórnarflokkurinn í Reykjavík.  Þrátt fyrir að ýmislegt megi út á þessar kannanir setja varðandi framkvæmd þeirra þá gefa þær að ég held vísbendingu um að fólki líst ekki á ástandið og aðgerðaleysið (aumingjaskapinn).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhann Hannó Jóhannsson
Jóhann Hannó Jóhannsson
Einfættur sjálfstæðismaður sem dáir MAN UTD, Breiðablik,F.Berlin. Hefur unun af ræktun rósa og gaman af hvers kyns ræktun.
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband