30.10.2007 | 07:01
Nýr landsliðsþjálfari í knattspyrnu.
Jæja þá er KSÍ búið að ráða nýjan þjálfara fyrir karlalandsliðið. Ekki tók það langan tíma fyrir þessa greifa að ráða þjálfara. Ég hef fylgst lengi með fótbolta, bæði á íslandi og erlendis. Það hefur auðvitað valdið mér áhyggjum hversu ömurleg frammistaða landsliðsins hefur verið undanfarin misseri. Ekki skal allri sökinni skellt á Eyjólf þó vissulega sé hann capteinninn. Mínar vonir stóðu til þess að núna yrði fenginn einhver til að stýra liðinu í leiknum á Parken sem framundan er og setjast svo niður að loknum þeim leik og kryfja málin til mergjar. Með fullri virðingu fyrir Óla Jóh finnst mér þessi ráðning ekki metnaðarfull fyrir stjórn KSÍ. Ég efast ekki um hæfni Óla Jóh sem þjálfara en hefði ekki verið rétt að anda aðeins eftir að þessari keppni lýkur og sjá hvaða kostir væru í boði. Auglýsa hefði mátt stöðuna á alþjóðavettvangi og sjá hvað út úr því kæmi. Einnig hefði mér fundist að kalla hefði átt saman þjálfara, gamla leikmenn, jafnvel fréttamenn og aðra viðurkennda knattspyrnuáhugamenn til málþings þar sem málin hefðu verið krufin til botns. Einnig fyndist mér að kominn sé tími til að KSÍ setji sér markmið til lengri tíma, hvert ætlum við að koma landsliðinu á næstu fimm árum, tíu árum eða eitthvað slíkt. Þetta yrði gert opinbert og við sem fylgjumst með á hliðarlínunni vissum hver stefnan væri og hver markmið þjálfara og stjórnar væru. Einnig held ég að slík stefnumörkun ætti að eiga við um öll landsliðin okkar alveg niður í yngsta unglingaliðið og vinna svo að markmiðinu fyrir opnum tjöldum. Óli Jóh sagði á fréttamannafundinum að hann réði. Hann sagði samt ekki hverju hann réði og heldur ekki hvað hans metnaður stæði fyrir. Kannski hafði hann ekki haft tíma til að setja sér markmið eða átta sig á því hvert hugur hans stefndi með liðið. Það vekur aftur upp spurninguna um hvað hafi verið rætt í atvinnuviðtali Óla Jóh og formanns KSI. Var kannski ekkert rætt annað en að Óli Jóh væri til í að skipta á "peysu" við Eyjólf ? Spyr sá sem ekki veit enda kom ekkert fram á fundinum hvað Óli Jóh hefði verið ráðinn til að gera!! Reyndar sagði kappinn að landsliðið væri ekki þekkt fyrir að skora mikið af mörkum svo hann myndi væntanlega reyna að laga vörnina......... Að lokum vil ég óska Ólafi Jóhannessyni nýráðnum landsliðsþjálfara íslands í knattspyrnu til hamingju með starfið og vona að störf hans og framganga verði metnaðarfyllri heldur en umræddur fréttamannafundur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.