Er Sturlu trukkara treystandi??

Eftir að hafa orðið vitni að því er Sturla laug til um og sneri baki við eigin liðsmanni hlýtur maður að vera farinn að efast um trúverðugleika mannsins.  Í þessari frétt og víðar ber hann við álagi og spennu sem mér persónulega finnst heldur ódýr afsökun fyrir því að þekkja ekki vinnufélaga og einn nánast samstarfsmann í mótmælunum.  Þetta er farið að bitna á konu hans og börnum segir Sturla, vissulega er það ekki gott en gerir hann sér ekki grein fyrir því að þetta hefur bitnað á þúsundum samborgara Sturlu, þetta hefur bitnað á lögreglunni almennt við önnur skyldustörf, þetta hefur líka bitnað persónulega á nokkrum lögreglumönnum sem hafa slasast en samt, samt klykkir hann út með því að haldið verði áfram ólöglegum mótmælum.  Ekki virðist vera brjálað að gera í vinnunni hjá karlinum því ekki liggur honum neitt á að sækja bílinn, þó ekki væri nema til að láta meta skemmdirnar á honum og koma bílnum svo í vinnuhæft ástand.  Ég held að Sturla og hinir trukkararnir ættu að hætta að leika sjónvarpsstjörnur og fara að vinna eins og íslendingum sæmir.  Ekki má heldur gleyma því að samúð og stuðningur fólks er fokinn út í veður, vind og Rauðavatn.
mbl.is Íhuga að kæra lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Ég held nú að vandamálið sé að þessir landar okkar fóru of geist í fjárfestingum þegar hægt var að fá lán fyrir öllu. Þeir eru reyndar ekkert einir um það. Nú er vinnan eitthvað að minnka, afborganir hækkað vegna gengisfallsins og stórhækkun eldsneytis þar ofaná. Gæti best trúað að Sturla vildi bara ekkert bílinn aftur. Vonast sennilega til að geta rift samningnum við Lýsingu, látið Lýsingu reyna að sækja bætur til löggunnar og sloppið þannig undan þeim skuldaklafa sem hann hugsanlega er kominn í. Það geta ekki verið neinar smá upphæðir sem þarf að greiða á mánuði af svona tæki.

Ef fyrirhyggjan hefur ekki verið mikil við fjárfestinguna er líklegt að hún hafi ekki verið meiri við gerð verksamninga og engar tengingar á taxta við hækkanir á tilkostnaði. Þá eru þessir menn í slæmum málum en menn hafa nú farið á hauinn hér áður án þess ráðast á almenning.

Landfari, 26.4.2008 kl. 10:39

2 Smámynd: Jóhann Hannó Jóhannsson

Sammála og held ég að best færi á því að bílstjórarnir hættu þessum fíflagangi og einhverjir sem treystandi er til héldu þeim áfram ef vilji einhverja er fyrir því.

Jóhann Hannó Jóhannsson, 26.4.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhann Hannó Jóhannsson
Jóhann Hannó Jóhannsson
Einfættur sjálfstæðismaður sem dáir MAN UTD, Breiðablik,F.Berlin. Hefur unun af ræktun rósa og gaman af hvers kyns ræktun.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband